22.2.2009 | 14:18
Heimskan í Bandaríkjunum kostar mörg saklaus mannslíf
Enn ein sorgar sagan af byssueign og heimsku í Bandaríkjunum. Það er óþarfi að hneykslast á því að hér sé um barna haglabyssu að ræða sem pilturinn notaði til verksins. Veiðar eru gríðarlega vínsælar í Bandaríkjum og ekkert rangt við að börn geti veitt með foreldrum sínum og eflaust aðeins þroskandi. Börn þurfa hinsvegar minni byssur sem eru meðfærilegar ef þau eiga að geta stundað veiðar. Hér í Kanada geta börn sem eru 12 ára fengið byssuleifi en mega ekki eiga byssur. Ég er nokkuð viss um að barnið má ekki eiga byssu og byssan því á ábyrgð foreldranna sem eiga að geyma vopnið og skotfærin með þeim hætti að barnið komist ekki í þau.
Eflaust verður drengurinn dæmdur sem fullorðinn og fær að vera í fangelsi um ókomin ár. Þetta á eftir að koma í ljós en ekki er hægt að líta framhjá ábyrgð foreldranna hér.
Eflaust verður drengurinn dæmdur sem fullorðinn og fær að vera í fangelsi um ókomin ár. Þetta á eftir að koma í ljós en ekki er hægt að líta framhjá ábyrgð foreldranna hér.
|
11 ára drengur ákærður fyrir morð |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |


apalsson
arnid
gattin
evabenz
lindagisla
loftslag
seinars
sigurjonth
Athugasemdir
Ég er ekki frá því að ég greini örlítinn hroka hjá þér.
Annars held ég að þessi glæpur segi lítið um gáfur og mikið um uppeldi, aga og persónuleika stráksins.
Jonas (IP-tala skráð) 22.2.2009 kl. 14:39
Veit ekki hvað þú átt við með hroska. Það er svo sannarlega heimska að hafa skotvopn og skotfæri aðgengileg á heimilum, sérlega þar sem börn eru. Uppeldi barna er á ábyrgð foreldra þar sem foreldrar eiga að veita aga og móta mjög persónu barna.
Davíð Gíslason, 22.2.2009 kl. 15:55
Þú setur þig á háann hest miðað við fólk sem á byssur og Bandaríkjamenn yfir höfuð.
Það er ekki heimska að hafa skotvopn og skotfæri aðgengileg á heimilum. Ef þér líkar ekki við byssur, ekki hafa þær á heimilinu þínu, en í guðanna bænum ekki segja mér að fólk sé heimskt sem vill geta verndað sig.
Það er jú heimskulegt að hafa skotvopn þar sem óábyrgir krakkar komast í þau.
Jonas (IP-tala skráð) 22.2.2009 kl. 19:05
uuuu.... það er ekkert skárra á Ísland... er ekki haglari á hverjum einasta bóndabæ þannig ef bóndinn kemur pissfullur heim og kemur að kellingunni sinni vera að leika sér með víbrarann fyrir framan sjónvarpið því það er mynd með George Clooney á RÚV, þá getur hann auðveldlega tekið halgabyssunna og gert Kjarval-málverk á vegginn bakvið hana
... svo er Bandaríkin ekkert verri hvað þetta varðar.... var ekki gaur í Finnalandi sem missti sig og skaut fólk í skóla og búið að vera 3 þannig insident í Finnlandi...
Hversu oft er mannrán í Bretlandi?
HVeru oft er barnaníðingadót að koma upp í Belgíu og Frakklandi?
USA er ekkert verra en önnur lönd
I I (IP-tala skráð) 22.2.2009 kl. 21:23
Jú II Bandaríkin eru svo sannarlega verri hvað varðar byssueign og morð heldur en önnur lönd. En það er rétt hjá þér að ástandið er ekki gott í Finnlandi enda mikið um byssur þar einnig. Það er nánast beint samband á milli byssueignar og morða/sjáfsmorða. Líttu á þessa slóð http://www.gun-control-network.org/GF01.htm
Davíð Gíslason, 23.2.2009 kl. 03:25
Því miður Davíð en þú ert að bulla.
Það er ekki samband á milli byssueignar og morða/sjálfsmorða. Byssur fá þig ekki til að vilja drepa þig eða annan, það er ákvörðun sem þú eða geðveiki þín tekur, ekki byssan. Þetta graf á linknum er bull. Þar er bara tekið fram dauðsföll tengd skotvopnum en ekki nefnt hvernig þau eiga sér (skaut byssueigandi glæpamann sem ógnaði honum eða eign hans? sjálfsmorð?) stað og ekki nefnt morð með öðrum vopnum. Í flestum tölfræði-tengdum upplýsingum sem anti-byssu fólkið kastar út reyna þeir viljandi að taka ekki fram mikilvægar upplýsingar.
Í þeim fylkjum og borgum í Bandaríkjunum þar sem fólki er leyft að bera á sér byssur eru hlutfallslega færri ofbeldisglæpir en í þeim sem hafa stranga byssulöggjöf.
Í Kennesaw í Georgíufylki var árið 1982 samþykkt lög sem gerðu það að skyldu fyrir hvert heimili að eiga byssu. Öll heimili nema þau sem glæpamenn bjuggu í og þau sem vildu ekki byssur af trúarlegum ástæðum áttu s.s. að eiga byssu. Innbrotum fækkaði um 90% strax eftir að löggjöfinni var eftirfylgt, miðað við þá 10.4% lækkun sem átti sér stað í öllu fylkinu. Yfirhöfuð er nú glæpatíðnin þar mjög lág og þar á meðal morðtíðnin. Kennesaw er með færri glæpatíðni heldur en nærliggjandi borgir.
http://en.wikipedia.org/wiki/List_of_countries_by_suicide_rate
Ég sé ekkert samband á milli sjálfsmorða og byssulaga þarna.
Jonas (IP-tala skráð) 23.2.2009 kl. 16:52
http://www.cato.org/pub_display.php?pub_id=4706
Ættir svo kannski að kíkja á þetta Davíð.
Jonas (IP-tala skráð) 23.2.2009 kl. 16:53
Jónas ég er ekki að ræða hér almennt um sjálfsmorð heldur aðeins þau sjálfsmorð sem eiga sér stað með byssum ekki rugla þessu saman.
Ef við lítum á tölur um dauða barna í Bandaríkjunum 2005 og helstu ástæður þeirra kemur berlega í ljós hversu mörg börn deyja af völdum byssa.
Í hópnum 1-4 ára létust 375 börn þar af 9.9% af völdum byssa, er 4. algengasta ástæða dauða í þessum hóp
Í hópnum 5-9 ára létust 121 börn þar af 63.4 af völdum byssa, er 4. algengasta ástæða dauða í þessum hóp
Í hópnum 10-14 ára létust 220 börn þar af 65.0% af völdum byssa, var 4. helsta ástæða fyrir dauða í þessum hóp en í 3 sæti hér var sjálfsmorð þar sem í 31.1% tilfella var notuð byssa.
Eftir að tekið var upp hér í Kanada 1991 reglur um skotvopn hefur morðum með byssum fækkað um 40% en á sama tíma hefur öðrum morðum aðeins fækkað um 28%. Þannig hefur morðum í heimahúsum og þá sérstaklega á konum fækkað gríðarlega.
Það er blindni að halda því fram að ef við öll berum vopn þá muni glæpum og morðum fækka. Þessi skoðun er þeirra í vopnaiðnaðinum og fylgifiska þeirra.
Davíð Gíslason, 23.2.2009 kl. 18:55
Davíð, þú tekur ekki fram við hvernig aðstæður þessi börn hafa dáið. Þessar tölur eru svo sannarlega mun hærri en tala yfir þau börn sem deyja af völdum byssutengdra slysa. Hversu mörg af þeim voru myrt? Hversu mörg af þeim hefðu hvort sem er verið myrt ef það hefðu verið strangari byssulög?
Finnst þér vera verra að einhver skjóti sig en að hengja sig? Hver var tilgangurinn með að taka fram sjálfsmorð í fyrri póstinum hjá þér?
Í Bandaríkjunum eru aðeins 0.6% af dauða-slysum byssu tengd.
"Most accidental deaths involve, or are due to, motor vehicles (39%), poisoning (18%), falls (16%), suffocation (5%), drowning (2.9%), fires (2.8%), medical mistakes (2.2%), environmental factors (1.2%), and bicycles and tricycles (0.7%). Among children: motor vehicles (45%), suffocation (18%), drowning (14%), fires (9%), bicycles and tricycles (2.4%), falls (2%), poisoning (1.6%),environmental factors (1.5%), and medical mistakes (0.8%). "
Ég finn lítið um byssulög í Kanada nema að skammbyssu-tengdum morðum hefur fjölgað eftir '91 lögin og að morðtíðnin sé að rísa eftir að fleiri byssulög voru samþykkt.
Þú verður svo að skoða hvað þú flokkar undir morð. Finnst þér það vera morð að skjóta mann sem er að ræna þig eða brýst inn í húsið þitt? Þessar tölur eru oft teknar með til þess að blása upp byssu-morða tölurnar.
Það er staðreynd, ekki skoðunarmál að byssulög virka ekki. Það hefur sannað sig aftur og aftur að það er engin tenging á milli morðtíðni og byssueignar, nema hvað að löghlýðnir borgarar geta ekki varið sig. Málið er að byssulög hafa bara áhrif á okkur sem erum löghlýðnir en ekki þá sem fylgja ekki lögunum. Ætti ekki að vera nóg að gera bara morð ólöglegt? Sjáðu hversu vel það virkar.
Jonas (IP-tala skráð) 23.2.2009 kl. 21:49
Fann loksins eitthvað um afleiðingar byssulaga í Kanada. Þú getur skoðað hvaða áhrif byssulög hafa haft í Kanada, Ástralíu og Bretlandi samanborið við Bandaríkin hérna...
Endilega skoðaðu þessa rannsókn:
http://www.issuelab.org/research/failed_experiment_gun_control_and_public_safety_in_canada_australia_england_and_wales
Gerð af engum öðrum en Kanadíska prófessorinum Gary A. Mauser.
Jonas (IP-tala skráð) 24.2.2009 kl. 00:57
Fraser stofnunin í Kanada er samansafn ofga hægrimanna og er talin af mörgum Kanadamönnum hafa mjög svo Ó-Kanadíslar skoðanir á hlutunum. Stofnunin er styrkt af t.d. olíufélögum og afneitar hitnun jarðar af mannvöldum og af tóbaksframleiðendum og afneitar árifum tóbaksreyks á þá sem ekki reykja svo dæmi séu tekin. Þessi skýrsla þeirra getur ekki með nokkru móti talist hlutlaust plagg í umræðunni um stjórnun á vopnaeign. Ég pissa á þessa skýrslu.
Davíð Gíslason, 24.2.2009 kl. 15:16
S.s. þú ert bara ákveðinn með þína skoðun og hlustar ekki á staðreyndir og rök.
Ekkert mál, ég er orðinn ágætlega vanur þrjósku fólki eins og þér... að vísu er það yfirleitt á bilinu 3-8 ára, en það er annað mál.
Jonas (IP-tala skráð) 24.2.2009 kl. 17:38
Ja, hérna hér..... alveg met hvað menn nenna að þrasa, bara til að hafa síðasta orðið;-)
Ég sé að þú getur skemmt þér vel hér Dabbi:)
Linda Samsonar Gísladóttir, 24.2.2009 kl. 20:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.