30.4.2011 | 21:21
Nýji Lýðræðisflokkurinn er ekki nýr!
Hvaða vitleysa er þetta Nýji Lýðræðisflokkurinn hefur boðið fram í kosningum síðan hann var stofnaður 1961. Fylgi flokksins virðist á upp leið í skoðanakönnunum en svo virðis sem flokkurinn sé að taka fylgi frá bæði íhaldsmönnum og frjálslindum.
|
Kanadamenn kjósa á mánudaginn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.12.2010 | 14:05
Lennons minnst
Hversvegna þarf fréttamaður að nefna nafn þess manns sem við viljum ekki nefna og viljum gleyma. Hvað kemur það fréttinni við að nefna þennan aumingja sem drap Lennon einungis til þess að reyna að verða frægur sjálfur. Þetta er einmitt það sem hann vill, vera nefndur á nafna í hvert sinn sem minnst er á Lennon. Hættum minnast á nafn þessa glæpamanns gegn mannkyni.
Lennon lifir
|
Lennons víða minnst í dag |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.6.2010 | 18:56
Af erlendum uppruna?
Hvað á blaðamaður við þegar hann segir að 19% íbúa Manitoba séu af erlendum uppruna. Mér vitanlega eru allir þeir sem búa í Kanada af erlendum uppruna og innflytjendur til landsins nema Indíánar og Inúítar.
|
Iceland Express flýgur til Winnipeg |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.4.2010 | 02:29
Jeppa kallar
Hvað er með þessa jeppa kalla alla, hraunið er ekki einu sinni kólnað áður en þeir þurfa að fara að spóla á því. Það er ekkert að því að umhverfisstofnun fari fram á athugun á þessari landnýðslu og glannaskap.
|
Lögregla rannsaki akstur Top Gear |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2010 | 12:31
Framleiðsluferli?
Enn ein illa skrifuð grein hér á mbl. Hvaða rugl er þetta um framleiðsluferli, er ekki nóg að segja að konur hafi bruggað bjór eða öllu heldur mjöð frá því menn (konur) hófu að brugga. Og Hvernig getur það gert vatn betra ef það er mengað að brugga úr því. Allir vita að gott vatn er undirstaða góðs bjórs.
|
Karlmenn eiga konum bjórinn að þakka |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.3.2010 | 18:54
History channel lýgur og falsar staðreindir
Ég hef verið að horfa á history channel upp á síðkastið og verð að segja að sjónvarpsefnið þar er hreint ömurlegt. Á þessu ári hafa þér verið að sýna endalausa þvælu um sögur úr biblíunni sem eru settar í vísindalegan búning eins og allt sé satt og vísindalega sannað. Næst í vitleysunni eru það dómsdags þvælan, nostradamus þættirnir og þættir um fljúgandi furðuhluti sem settir eru upp á sama hátt. Allt gert til þess eflaust að blekkja almenning sem heldur að hann sé að horfa á eitthvert vísindaefni og staðreyndir í sjónvarpinu. Best er að slökkva á þessari stöð, þótt ég verði að seigja að ég hef lúmskt gaman að þvælunni.
|
Andlitsmynd af Jesú Kristi? |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.3.2010 | 14:44
Síðasti geirfuglinn
það er ekki rétt að síðustu Geirfuglarnir hafi sést í Noregi 1848. Síðasti lifandi geirfuglinn sást á Grand bank fyrir utan Nýfundnaland í Kanada 1852 en þessi fundur er viðurkenndur af International Union for Conservation of Nature and Natural Resources.
|
Síðustu geirfuglarnir í Noregi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.3.2010 | 13:39
LOKSINS
Þess hefur verið beðið lengi að Kaþólska kirkjan hætti að fela og viðurkenni kynferðislegt ofbeldi sem hefur átt sér stað innan kirkjunnar um ára tuga skeið. Hve lengi þurfum við að bíða eftir að páfi viðurkenni kynferðislegt ofbeldi presta í sínu eigin heimalandi? Já sannleikurinn kemur seint til þeirra í Vatíkaninu.
|
Páfi biðst afsökunar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.3.2010 | 19:11
Hornsíli eru súper pabbar
Skemmtileg grein en kjánalega orðuð. Hjá sæhestum sem og öðrum fiskum þá kallast karldýrið hængur og kvendýrið hrygna. Fuglar og skriðdýr verpa eggjum en fiskar hrygna
hrognum. Þá er ég ekki alveg viss um að hægt sé að tala um meðgöngu hér þar sem minn skilningur á meðgöngu er þegar um er að ræða innri frjóvgun og þroska fósturs.
Af Íslenskum fiskum er það Hornsílið (Gasterosteus aculeatus ) þar sem hængarnir sjá um að klekja út hrognunum. Hængarnir tryggja yfirráðasvæði og byggja hreiður á botni tjarnar eða vatns sem þeir lifa. Hreiðrið er samsett úr smá steinum, jurtaleyfum og öðru sem Hængarnir finna í vatninu en þeir líma þetta allt saman með sérstöku efni sem þeir seita. Á hrygningar tímanum hafa hængarnir farið í fallegan búning þar sem þeir roðna á kvið og undir kjálka og hæna til sín hrygnu með fallegum dans. Hrygnan hrygnir í hreiðrið og hængurinn frjóvgar hrognin með því að sprauta sviljum sínum á hrognin á sama tíma. Eftir þetta yfirgefur hrygnan síðan hænginn sem sér um að vernda og klekja út hrognunum. Eftir er mikil vinna hjá hængnum við að verja hrognin frá afræningjum dag og
nótt. Einnig að viðhalda hreiðrinu sem og að þyrla stöðugt fersku súrefnisríku vatni að
hrognunum með sporðinum. Seiðin klekjast út á um 10 dögum og fljótlega eftir það yfirgefa
þau hreiðrið og er þá föðurhlutverki hængsins lokið.
|
Karlarnir sjá um meðgönguna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
18.3.2010 | 13:24
Af hverju er þetta frétt?
Alltaf þegar einhverjir mótor vitleysingar fara í ferðir um náttúru Íslands með tilheyrandi eyðileggingu og mengun þá eru það fréttir hér á mbl. Hvað er svona merkilegt við það að hossast í jeppa og brenna eldsneyti sér til skemmtunar? Ég býst við að kreppan sé ekki eins djúp hjá þessum hópi fólks sem getur leikið sér við að brenna eldsneyti til einskis.
|
Um 160 manns yfir hálendið |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)



apalsson
arnid
gattin
evabenz
lindagisla
loftslag
seinars
sigurjonth